1. |
Dansa meira
04:24
|
|||
Það spyr mig enginn hvar ég sofna í nótt
Sofnaði á verðinum
Það spyr mig enginn hvað þig dreymir í dag
Ég veit ekki hvernig ég ættað hafa
Áhrif á þínar gjörðir
Gjörðir
Vil ekki hafa áhrif á þínar gjörðir, gjörðir
Og nóttin færist nær ég er búin að fá nóg af brostnum væntingum
Er nóttin einhvers virði að dreyma í dag?
Ég veit ekki hvernig ég mun höndla það
En ég held bara áfram
Þúsund möguleikar
En ég held bara áfram ein leið áfram
Og ég dansa og ég dansa meira
Ég dansa í nótt til að gleyma
Og ég skal dansa í alla nótt
Það tekur tíma að læra að treysta á ný, opna hjartað sitt
Og takast á við slæmu ávanana, breyta og segja skilið við þá
Því ég ætla að dafna, dafna
Segja skilið við þá
Ég á skilið að dafna, já að dafna
Og ég dansa og ég dansa meira
Ég dansa í nótt til að gleyma
Og ég skal dansa í alla nótt
Ég á svo marga stuðningsmenn sem að styðja við bakið mitt
Það er ekkert að stoppa mig nema hausinn á sjálfri mér
Passar margbrotna hjartað mitt
Vafði það inní bómull
Föst á skipi í stormi en ég vil alltaf vera skipstjórinn
Já ég dansa og ég dansa meira
Dansa í alla nótt
|
||||
2. |
Er þetta allt og sumt?
03:37
|
|||
Er þetta allt eða ekkert
Hvað ef ég sakna þín smá?
Rúmið tvíbreitt
Ég leita og leita og leita en finn ekki neitt
Er þetta allt og sumt? Er þetta búið
Er þetta allt og sumt? Ég trúi því varla en tómleikinn á mig gat
Það tekur því varla að spá hvort þetta hefði gengið, æj veistu
Er þetta allt eða ekkert
Hvað ef ég sakna þín smá?
Rúmið tvíbreitt
Ég leita og leita og leita en finn ekki neitt
Hvað er það sem þú ert að spá?
Hvað er það sem að þú vilt þrá?
Gefa þig ástinni á fullkomið vald
Eða halda í sjálfstæðið án alls afturhalds
Þú getur sagt mér allt, því ég er enn að leita að sálufélaga
En ég er meira í því að fara á eitt deit og svo gráta í hálftíma
Í gegnum súrt og sætt, því ég hef bíómyndarómansvæntingar
Í gegnum súrt og sætt, við hefðum aldrei höndlað það
Er þetta allt eða ekkert
Hvað ef ég sakna þín smá?
Rúmið tvíbreitt
Ég leita og leita og leita en finn ekki neitt
|
||||
3. |
Að elska og þrá
04:08
|
|||
Segðu mér allt sem þú vilt segja
Segðu mér hvað þú vilt fá
Einhvern dag munum við öll deyja
Eins gott þá að lifa nú
Að elska og þrá
Sólin skín ég er búin að heyra
Svo mörg mjúk þín leyndarmál
Meingölluð en þú vilt enn vera vinur minn fallega sál
Þrífst á því að dreyma um betri dag
Passa inn í allt þitt skipulag um sólarlag
Ó skipulag um sólarlag
Að elska og þrá
|
||||
4. |
Leyfa þessu að gerast
04:30
|
|||
Ég held mig langi ekki að staðna hér á sama stað
En ræturnar þær toga fast og er svo erfitt að fjarlægjast
Og áhyggjurnar blinda mig, er hætt að skilja hvað ég vil
Þykir samt svo vænt um þau og þig
Æj ég verð að hætta að stressa mig
Leyfa þessu að gerast
Með nýja drauma og væntingar
Ég er að reyna að skilja við gamla drauga og minningar
Sem að toga í mig
Leyfa þessu að gerast
Þenjast út að þolmörkum
Allt of hörð við sjálfa mig
Fullkomnunaráráttan er komin á hættustig
Ég leyfði þessu að gerast
En ég vil enduruppgötva
Frelsið til að breytast
Æj hvernig á mér að líða?
|
Streaming and Download help
If you like k.óla, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp